Hjá Rafal tökum við reglulega á móti nemum í rafvirkjun þar sem nemar fá þjálfun í raunverulegum verkefnum, undir leiðsögn reynslumikils fagfólks. Markmiðið er að undirbúa þau fyrir sveinspróf svo þau geti hafið störf sem fullgildir rafvirkjar.
Á undanförnum árum hafa margir nemar lokið námi sínu hjá Rafal og öðlast réttindi í faginu. Við leggjum áherslu á að veita nemum góða aðstöðu til æfinga og markvissan undirbúning fyrir sveinspróf.
Í sveinsprófum í febrúar náðist framúrskarandi árangur þar sem einn af okkar nemum, Egill Hrafn Benediktsson, fékk 9,8 á verklega prófinu, sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á verklegu prófi.

Á samningstíma fékk Egill að takast á við fjölbreytt verkefni, meðal annars skápasmíði í framleiðslu, vinnu við stækkun svartsengis hjá HS Orku og verkefni tengd stækkun gagnavers á Blönduósi. Þessi breidd gefur nemum dýrmæta innsýn í ólíkar hliðar fagsins og styrkir undirbúning þeirra fyrir starfið.
„Egill var fyrirmyndar nemi, áhugasamur og sýndi sjálfstæða hugsun en var jafnframt óhræddur við að spurja spurninga“, segir verkefnastjóri hans.
Þetta sýnir að góður undirbúningur og fjölbreytt verkefni skipta máli.
Samkvæmt tilkynningu frá Rafmennt fór afhending sveinsbréfa fram í apríl. Við óskum öllum nýútskrifuðum sveinum innilega til hamingju með áfangann.

