Rafal hefur hafið störf við stækkun gagnavers Borealis Data Center á Blönduósi, þar sem fyrirtækið annast hönnun, uppsetningu á há- og lágspennubúnaði ásamt gangsetningu allra rafmagnskerfa.
Verkefnið hefur farið vel af stað og hefur fjöldi starfsmanna Rafal unnið að framkvæmdum frá áramótum. Gert er ráð fyrir að mannskapur aukist hratt á næstu vikum og að allt að 50 starfsmenn taki þátt á hápunkti framkvæmda.
Gagnaver gera ríkar kröfur um áreiðanleika, öryggi og gæði, og nýtir Rafal í því samhengi víðtæka reynslu af flóknum raforku- og innviðaverkefnum í nánu samstarfi við Borealis Data Center.
Rafal leggur sérstaka áherslu á öryggi, fagmennsku og vandaða framkvæmd og er stolt af því trausti sem fyrirtækinu er sýnt með þátttöku í verkefnum af þessari stærðargráðu.

