Sjöunda orkuverið í Svartsengi tekið í notkun

Formleg gangsetning sjöunda orkuversins í Svartsengi (SVA7) fór fram 1. desember 2025, á fullveldisdag Íslands. Um er að ræða 55 MW vélarsamstæðu, stærsta gufuhverfil sem settur hefur verið upp á Íslandi til þessa. 

Nýja orkuverið leysir af hólmi tvö af eldri orkuverum HS Orku og felur jafnframt í sér umfangsmiklar endurbætur á heitavatns- og raforkukerfi svæðisins. Með stækkuninni mun framleiðslugeta raforkuversins hækka í Svartsengis um allt að þriðjung, en hún er nú um 63 MW

Rafal gegndi lykilhlutverki í uppsetningu þessa nýja orkuvers sem einn þriggja hliðarverktaka.  

Stærsta einstaka verkefni Rafal til þessa

Rafal undirritaði verksamninga við HS Orku og Ístak í lok árs 2023, og hefur fyrirtækið unnið að framkvæmdinni frá ársbyrjun 2024. Meðal stærri verkþátta má nefna: 

  • Uppsetningu á stærsta gufuhverfli landsins (55 MW) 
  • Spennusetning fyrsta „green gas“ tengivirkis á 132 kV á Íslandi 
  • Uppbygging á stærsta kæliturni landsins 
  • Smíði og uppsetning á töfluskápum, allt frá stjórn- og varnarskápa til afldreifi- og háspennuskápa. 

Þrátt fyrir miklar náttúruhamfarir á framkvæmdatíma, þar sem eldgos á Sundhnúksgígaröðinni urðu níu talsins, stóðust allar helstu verk- og tímaáætlanir. 

Rafal er stoltur þátttakandi í orkuuppbyggingu á Íslandi

Helgi Guðmundsson, deildarstjóri Stórframkvæmda hjá Rafal, segir að gangsetning SVA7 marki stóran áfanga fyrir bæði HS Orku og Rafal: 

„ Það er fyrst og síðast þakklæti sem kemur upp í hugann á þessum tímamótum. Þakklæti til allra starfsmanna fyrirtækisins sem lögðu hönd á plóg, samvinna við HS Orku og annarra verktaka á svæðinu, öðruvísi hefði þetta aldrei gengið upp. 
Ég vill nota tækifærið og óska Rafal og vinum okkar hjá HS Orku til hamingju með þennan áfanga. Vonandi verður næsta virkjun byggð innan fárra ára.“ 

Mikilvæg fjárfesting og áframhaldandi uppbygging

Heildarkostnaður við stækkunina og endurbætur er áætlaður um 14 milljarðar króna og liggur fyrir að uppsett afl Svarstengis getur hýst frekari stækkun í framtíðinni, að uppfylltum sjálfbærniskilyrðum jarðhitaauðlindarinnar. 

Verkið í Svartsengi er eitt umfangsmesta verkefni Rafal frá upphafi og markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu orkuinnviða á Íslandi. Rafal þakkar HS Orku fyrir traustið og hlakkar til áframhaldandi samstarfs í verkefnum framtíðarinnar.