Starfsfólk Rafal lauk nýlega við sérhæft viðhaldsverkefni fyrir ON á Hellisheiði þar sem skipt var um gegntök á þremur 50 MVA vélaspennum.

Spennarnir eru olíufylltir og því þurfti að lækka olíustöðu þeirra áður en gegntökin voru fjarlægð. Olían var geymd á meðan á verkinu stóð og að útskiptum loknum var henni dælt aftur á spennana undir lofttæmi. Að lokum var hún hreinsuð með öflugum olíuhreinsibúnaði Rafal.
Framkvæmdin kallaði á góðan undirbúning og sérhæfðan búnað. Til að koma gegntökunum að og frá spennunum þurfti meðal annars að opna þak byggingarinnar og hífa þau með krana.



Viðhaldi allra þriggja spennanna lauk samkvæmt áætlun og voru þeir teknir aftur í rekstur að viðhaldi loknu.
Rafal annaðist bæði mælingar og ástandsgreiningu í aðdraganda verkefnisins og útskipti á gegntökunum.



