Rafal hefur tekið í notkun nýja olíuhreinsistöð í færanlegum gám, til hreinsunar á spennaolíu. Búnaðurinn gegnir lykilhlutverki í viðhaldi raforkuinnviða um allt land og gerir okkur kleift að þjónusta fjölbreytt verkefni hvar sem þeirra er þörf.
Orkuöryggi byggir á traustu viðhaldi
Áreiðanlegt raforkukerfi er grunnstoð samfélagsins. Heimili, fyrirtæki og mikilvægir innviðir reiða sig á stöðugt framboð rafmagns. Til að tryggja það þá þarf reglulegt og vandað viðhald á öllum lykilbúnaði, þar á meðal spennum og einangrun þeirra.


Olíusýni gefa skýra mynd af innra ásandi spenna. Með því að greina olíu reglulega má fyrr sjá merki um bilarnir, niðurbrot, raka eða mengun sem getur leitt til bilana.
Tæknilausn í sérflokki
Afkastageta olíuhreinistöðvarinnar gerir okkur kleift að vinna með gríðarlegt magn af olíu, eða allt að 9000 lítrum á klukkustund með 140 kW hiturum og öflugum vaccum dælum. Samanlögð afköst vaccum dælanna fer yfir 2000 m3 á klukkustund, sem gerir stöðina að einni af öflugustu olíuhreinsistöðvum sem til eru á Íslandi.
Rafal tryggir að þjónustan okkar standi ávallt undir hæstu kröfum
Viðhald innviða er eitt af þeim verkefnum sem við höfum sérþekkingu á. Nýja olíuhreinsistöðin styrkir enn frekar getu okkar til að þjónusta raforkukerfið á öruggan og skilvirkan hátt og er mikilvægt framlag til orkuöryggis.

Ert þú með búnað sem þarfnast skoðunar, mælingar eða greiningu á olíu?
Tengiliður:
Örn Jensen Egilsson
Verkefnastjóri – Stórnotendur
orn@rafal.is


