Rafal vinnur nú að umfangsmikilli uppfærslu á stjórn- og varnarbúnaði í tengivirki Landsnets á Kolviðahóli og innleiðingu á stafrænum nýjungum í tengivirkinu (Digital Substation). Tengivirkið gegnir lykilhlutverki í íslenska flutningskerfinu en það tengir Hellisheiðarvirkjun við flutningskerfið á milli tengivirkjanna á Geithálsi og Lækjartúni.
Um er að ræða stærstu uppfærslu stjórn- og varnarbúnaðar í tengivirkjum Landsnets sem uppfært er með stafrænni tækni til þessa og markar verkefnið því mikilvægan áfanga í þróun raforkuinnviða landsins.
Rafal sér um uppsetningu, forritun og prófanir á stjórn- og varnarbúnaði ásamt aðstoð við gangsetningu kerfisins.
Verkefnið snýst um að uppfæra hefðbundið tengivirki með samskonar búnaði og notaður er í stafrænum tengivirkjum. Nálgunin hefur verið kölluð hybrid digital substation og vonir standa til að hún komi til með að auka rekstraröryggi ásamt því að einfalda viðhald og leggja grunn að framtíðarþróun flutningskerfisins.
Mikilvægur áfangi náðist í lok mars þegar FAT-prófunum (Factory Acceptance Testing) lauk með góðum árangri. Nú, um miðjan júní, á aðeins eftir að uppfæra einn reit af átta. Vinna við hann fer fram í byrjun júlí í samræmi við viðhaldsáætlanir í flutningskerfinu.
Verkefnið er leitt af þeim Brynjari Eiríkssyni og Wojciech Grzeszczuk ásamt öflugum hópi sérfræðinga frá Rafal sem hafa komið að hönnun, uppsetningu og prófunum. Þekkingin og reynslan sem hefur skapast í gegnum verkefnið er umtalsverð og styrkir stöðu Rafal enn frekar á sviði stafrænna tengivirkja.


Fyrr í þessum mánuði var Lækjartúnslína 1 tekin aftur í rekstur með nýjum stjórn- og varnarbúnaði. Um var að ræða fyrsta spennusetta línureitinn með hybrid digital substation fyrirkomulaginu sem Rafal hefur unnið að í samstarfi við Landsnet.
Við erum afar stolt af þeim árangri sem náðst hefur og þökkum Landsneti fyrir gott samstarf sem og öllu því Rafal fólki sem hefur lagt sitt af mörkum við verkefnið.


