Það er gríðarlega mikilvægt að byggja upp traust og góð samskipti við viðskiptavini. Rafal og Elkem Ísland hafa átt í farsælu samstarfi í rúm 40 ár sem byggir á fagmennsku, gagnkvæmu trausti og sameiginlegri áherslu á öruggan og áreiðanlegan rekstur.

Þann 8. júní síðastliðinn fór 16 manna hópur frá Rafal í árlega viðhaldsskoðun í tengivirki Elkem á Grundartanga. Verkefnið fólst meðal annars í yfirferð og skoðun á búnaði, þrifum, prófunum á rofum og spennum, auk annarra mikilvægra viðhaldsverkefna sem stuðla að öruggum rekstri virkisins.


Saga þessa samstarfs nær aftur til ársins 1984 þegar starfsfólk Rafal sinnti í fyrsta sinn sambærilegu viðhaldi fyrir Elkem. Á þeim fjórum áratugum sem liðnir eru hefur bæði tæknin og framkvæmd verkefnanna þróast verulega, en markmiðið hefur ávallt verið það sama – að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur mikilvægra innviða.
Áður en slík viðhaldsstopp fara fram liggur að baki umfangsmikil undirbúningsvinna. Starfsfólk Elkem og Rafal vinnur náið saman að skipulagningu verkefnisins þar sem hver verkþáttur er undirbúinn af kostgæfni áður en verksmiðjan er gerð rafmagnslaus og viðhaldið hefst.


Við erum stolt af þessu langvarandi samstarfi og þökkum Elkem fyrir traustið í gegnum árin. Slík tengsl eru lykillinn að árangursríku samstarfi og öruggum rekstri mikilvægra iðnaðarinnviða.


