Með vorið á næsta leiti og góuna gengna í garð gafst kærkomið tækifæri til að staldra við og eiga góða stund saman.
Rafal bauð viðskiptavinum, samstarfsaðilum og vinum í góugleði þar sem áhersla var lögð á að fagna góðri samvinnu og því sem við höfum byggt upp saman.
Það er mikil fjárfesting framundan í orkuinnviðum og hjá stórum notendum eins og gagnaverum og í landeldi. Tæknin þróast hratt og samkeppnisumhverfið tekur stöðugum breytingum. Rafal mun áfram vera leiðandi afl í að umbreyta orku í tækifæri.
Hjá Rafal trúum við því að árangur náist með samvinnu ásamt traustum tengslum og opnum samskiptum, en þá skapast grunnur að sterkum lausnum og áframhaldandi þróun.
Við þökkum fyrir samfylgdina og hlökkum til áframhaldandi samvinnu.
Myndir frá gleðinni:



























































































































































































