Rafal hefur hlotið ISO 45001 vottun frá BSI Group, sem staðfestir að fyrirtækið starfi samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum kröfum um heilbrigði og öryggi á vinnustað.
ISO 45001 er alþjóðlegur staðall sem miðar að því að draga úr áhættu, fyrirbyggja slys og efla öruggt og heilbrigt starfsumhverfi.
Öryggi í forgrunni
Hjá Rafal er öryggi ekki aðeins krafa, það er grunnforsenda alls sem við gerum. Við leggjum ríka áherslu á að öll komi heil heim að loknum vinnudegi.
Vottunin er staðfesting á því markvissa starfi sem hefur verið unnið á undanförnum árum við að efla öryggismenningu, innleiða skýra verkferla og áhættumat ásamt því að tryggja stöðugar umbætur í starfsemi.
Sterk liðsheild, skýr sýn og sameiginleg ábyrgð á öryggi eru lykilþættir í að ná þessum árangri.
Stjórnkerfi Rafal í heild

Með ISO 45001 vottun bætist enn ein stoðin við samþætt stjórnkerfi Rafal, sem byggir einnig á ISO 9001, ISO 14001 og ÍST 85:2012. Þannig tryggjum við að gæða-, umhverfis- og öryggismál séu órjúfanlegur hluti af okkar starfsemi.

