Í byrjun september fór fram Haustráðstefna Advania 2025 í Hörpu. Í rúma þrjá áratugi hefur ráðstefnan verið einn mikilvægasti vettvangur landsins fyrir umræðu um tækni, nýsköpun og samfélagslega þróun. Þema ársins var meðal annars gervigreind, netöryggismál, nýsköpun og sjálfbærni.
Rafal átti þar sinn fulltrúa þegar Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður hjá Rafal, flutti erindi sem bar yfirskriftina:
„Let’s turn (all kinds of) energy into opportunity“.

Áskoranir raforkukerfisins – daglegar fréttir
Í erindinu minnir Ingibjörg á að umræðan um orkukerfið sé orðinn fastur liður í umræðunni. Nánast daglega heyrist talað um erfiðleika Landsnets við að stækka flutningskerfið og þær áskoranir sem Landsvirkjun stendur frammi fyrir við að koma nýjum virkjunum af stað.
„Flutningskerfið okkar er orðið of gamalt og á erfitt með að anna eftirspurn, á sama tíma og orkan sem fyrir er, er í raun uppseld“.
Þetta skapar tvíþætt vandamál: annars vegar eru miklar innviðaáskoranir í kerfinu sjálfu og hins vegar vaxandi eftirspurn eftir hreinni orku frá fjárfestum, frumkvöðlum og samfélaginu í heild. Lausnin liggur ekki eingöngu í fleiri stórum virkjunum heldur einnig í nýrri nálgun – með smádreifistöðvum og sterkari raforkudreifingu sem styrkir samfélög og eykur seiglu kerfisins.
Án traustrar orku og innviða verða hátæknitækifæri ekki að veruleika
Ingibjörg dregur fram mynd af þeim fjölmörgu tækifærum sem felast í að tengja íslenska orku við hátæknigreinar framtíðarinnar.

Setjum okkur öfluga stefnu um hvernig við nýtum orkuna. Nýtum hana í uppbyggingu gervigreindar, hátækni, vísindarannsóknir og þróum vörur á heimsmælikvarða. Nýtum hana til að skapa spennandi og eftirsóknarverð störf sem krefjast þekkingar og menntunar.
Þetta samræmist vel sjónarmiðum samstarfsfélaga okkar í Borealis Data Center, sem minntu á að „AI isn‘t abstract: it‘s physical. Without power and reliable facilities, the AI conversation ends before it begins!“.
Umbreyting Rafal
Ingibjörg sagði einnig frá því hvernig Rafal hefur gengið í gegnum eigin umbreytingu – úr hefðbundnu rafverktaka fyrirtæki yfir í þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á nýsköpun, samstarf og að skapa aukið virði fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk.
„Við í Rafal trúum því að raforka sé ekki aðeins orka sem flutt er með rafstraumi, heldur afl sem getur skapað verðmæti, störf og lífsgæði. Með því að umbreyta orku í tækifæri getum við lagt okkar af mörkum til samfélags sem nýtir auðlindir sínar á sjálfbæran og skapandi hátt“, sagði Ingibjörg meðal annars í erindinu.


Við hjá Rafal erum stolt af því að hafa tekið þátt í þessari mikilvægu ráðstefnu og hlökkum til að vinna áfram að því að umbreyta orku í tækifæri fyrir íslenskt samfélag.

