Veistu hvað gasið í spennaolíunni er að segja þér? Þeirri spurningu var leitast við að svara á fræðslufundi sem Rafal hélt í samstarfi við Vaisala þann 8. október í Hringhellu 9a. Mikill áhugi var á fundinum, en 52 þátttakendur frá 16 fyrirtækjum skráðu sig, meðal annars frá orkufyrirtækjum, veitum, verkfræðistofum og stóriðju.


Fyrirlesari var Senja Leivo, sérfræðingur í ástandsvöktun spenna hjá Vaisala í Finnlandi, með tæplega 30 ára reynslu á sviðinu. Hún fjallaði um hvernig greining uppleystra lofttegunda í spennaolíu, svokölluð DGA-greining, getur hjálpað til við að greina vísbendingar um bilanir áður en þær þróast í alvarlegar skemmdir.
Á fundinum var farið yfir grunnatriði DGA-greiningar, samfellda vöktun og túlkun á frávikum milli rannsóknarstofumælinga og mælinga úr vöktunarbúnaði. Senja sýndi jafnframt raunveruleg dæmi úr rekstri sem vörpuðu ljósi á hvernig nýta má niðurstöðurnar við ástandsmat og ákvarðanir um viðhald.
Áhersla var lögð á að skoða þróun mælinga yfir tíma og túlka þær með hliðsjón af sögu og rekstri hvers spennis. Þannig getur vöktun veitt mikilvægar upplýsingar um breytingar á ástandi búnaðarins og hjálpað rekstraraðilum að bregðast tímanlega við.
Við hjá Rafal erum virkilega ánægð með áhugann og þátttökuna. Það er mikilvægt að þeir sem nota mæli- og vöktunarbúnað skilji bæði hvað hann mælir og hvernig lesa má úr niðurstöðunum. Við þökkum Senju fyrir fróðlega og hagnýta umfjöllun og öllum gestum fyrir komuna.

Við stefnum á að halda fleiri fræðslufundi af þessu tagi. Viltu fá boð á næsta viðburð? Skráðu þig á póstlista Rafal fyrir fræðslu og viðburði.


