Fljótsdalsstöð er stærsta aflstöð landsins með 690 MW uppsett afl. Stöðvarhúsið er staðsett neðanjarðar inni í Valþjófsstaðafjalli og þar eru sex hverflar sem framleiða yfir 5000 gígavattstundir af rafmagni á ári. Þetta gerir stöðina að einni mikilvægustu stoð íslenska raforkukerfisins.
Rafal hefur nú afhent og sett upp sex einingar af OPT100 DGA mælabúnaði frá Vaisala fyrir Landsvirkjun. Mælabúnaðurinn var gangsettur í Fljótsdalsstöð í síðustu viku í samstarfi við sérfræðing frá Vaisala, framleiðanda búnaðarins.
Lykilatriði fyrir stöðugt og öruggt raforkuframboð
OPT100 DGA mælabúnaðurinn eykur áreiðanleika og öryggi í rekstri raforkukerfa með því að veita nákvæma yfirsýn yfir ástand háspennubúnaðar. Með þessum nýja búnaði fær Landsvirkjun mikilvægt verkfæri til að greina möguleg frávik tímanlega, áður en þau þróast yfir í alvarlegar bilanir. Með því eykst öryggi og áreiðanleiki raforkukerfa.


Við óskum Landsvirkjun innilega til hamingju með nýja búnaðinn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs. Við hjá Rafal höfum mikla reynslu af því að innleiða lausnir sem styrkja innviði raforkukerfa.
Ef þú vilt vita meira, endilega hafðu samband!
Jakob Brynjar Sigurðsson
Deildarstjóri – Stórnotendur
jakob@rafal.is

Örn Jensen Egilsson
Verkefnastjóri – Stórnotendur
orn@rafal.is





