Með nýjustu fjarskiptatækni er hægt að umbreyta einföldum mælingum í dýrmæt gögn, sem nýtast í rekstri innviða. LoRaWAN (Long Range Wide Area Network) gerir það mögulegt að safna rauntímagögnum frá þúsundum skynjara, um hita, raka, þrýsting eða aðrar lykilbreytur og miðla þeim örygglega yfir stór stæði með lágri orkunotkun.
Rafal hefur þegar nýtt LoRaWAN í fjölmörgum verkefnum, meðal annars í stýringum á götulýsingu á Höfuðborgarsvæðinu og í ýmsum öðrum fjarvöktunarlausnum. Þá hefur Rafal í samstarfi við Veitur og Akenza sett upp vöktun til að bæta eftirlit með jarðhitaorku. Þar var komið upp fjarvöktun á þrýstingi í Nesjavallaæðinni, sem flytur heitt vatn til höfuðborgarsvæðisins, og á vatnsþrýstingi víðsvegar um höfuðborgina. Gögnin styðja spálíkön Veitna, draga úr rekstrarkostnaði og gera viðhald skilvirkara, auk þess að hámarka nýtingu jarðhitaauðlinda.

LoRaWAN er eitt af fjölmörgum tólum sem auðveldar og styðja við fjarvöktun og stýringar. Rafal á og rekur stærsta LoRaWAN kerfið á Íslandi.
Ef þú vilt vita meira, endilega hafðu samband!
Hrafn Guðbrandsson
Deildarstjóri – Stafrænar lausnir
hrafn@rafal.is

Rakel Sigurjónsdóttir
Hugbúnaðar- og lausnasérfræðingur – Stafrænar lausnir
rakel@rafal.is


