Fuse mætir auknum kröfum gagnaveranna um hraða og sérþekkingu

Gagnaversiðnaðurinn á Íslandi er í örum vexti og kallar á sífellt meiri sérþekkingu og hraðari þjónustu. Til að mæta þeirri þróun hefur Fuse nú verið stofnað, nýtt félag sem byggir á yfir 40 ára reynslu Rafal af raforkuinnviðum og sérhæfir sig alfarið í fjölbreyttri þjónustu við gagnaver. Ljósbrá Logadóttir, framkvæmdastjóri Fuse, var í viðtali í Morgunblaðinu 29. október undir fyrirsögninni „Verðmæti sem okkur óraði ekki fyrir“ þar sem hún fór yfir stöðu greinarinnar og hlutverk félagsins.  

Þar kom meðal annars fram að samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins stefna útflutningstekjur gagnveranna og tengdrar starfsemi í rösklega 72 milljarða króna á þessu ári og fyrir hvert beint starf hjá gagnaverunum sjálfum hafa orðið til um 4,5 störf hjá fjölda áhugaverðra fyrirtækja sem hafa sprottið upp í kringum gagnaverin. 

Sterkur mótspilari 

Ljósbrá segir að vegna sívaxandi umsvifa gagnaversiðnaðar hér á landi hafi orðið úr að stofna nýtt félag sem muni alfarið sérhæfa sig í þjónustu við þessa ört vaxandi iðngrein. „Við höfum til margra ára tekið að okkur verkefni fyrir gagnaverin, mörg þeirra mjög stór að umfangi, og jafnt og þétt hefur okkur tekist að byggja upp mikla sérþekkingu hjá fyrirtækinu,“ segir hún og bætir við að með Fuse sé ætlunin að staðsetja félagið betur á markaði. „Greinin gerir æ ríkari kröfur um hraða þjónustu og mikla sérþekkingu.“ 

Verkefnastaðan er mjög góð og um þessar mundir er verið að fylgja úr vör stóru verkefni með Borealis. Ljósbrá bendir á að ekki aðeins þurfi mikið af mannskap og búnaði þegar gagnaverin eru reist heldur kalli starfsemin á viðvarandi þjónustu. „Eftir að gagnaver er gangsett þarf að vakta búnaðinn og sinna viðhaldi eftir atvikum, og bregðast hratt við bilunum. Þá er tæknin í stöðugri endurnýjun og þörf á að skipta reglulega út eldri búnaði fyrir nýjan.“ 

Þörf á fleira fólki 

Ljósbrá nefndi einnig að bæði þyki störfin í kringum gagnaverin vel launuð og skemmtileg en að þau kalli iðulega á töluverða sérfræðiþekkingu umfram það sem fólk lærir í hefðbundnu rafvirkjanámi. Þá þarf að sýna sérstaka aðgát þegar unnið er í kringum rafmagn og því er lögð rík áhersla á að skapa sterka öryggismenningu bæði á verkstað og innan félagsins. 

Gríðarleg tækifæri 

Spurð um framtíð íslenska gagnaverageirans segir Ljósbrá að gaman væri að sjá lítil og meðalstór gagnaver rísa á fleiri stöðum hringinn í kringum landið. „Það eru gríðarleg tækifæri fólgin í því að nú sé að rísa nýr iðnaður hér á landi sem skapar verðmæti og ný störf sem okkur óraði ekki fyrir.“ 

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.