Rafal hefur á undanförnum árum þróað og framleitt fjölbreytt úrval dreifistöðvahúsa sem uppfylla strangar kröfur um öryggi, endingargildi og aðgengi.
Húsin eru hönnuð sem lykilhluti í raforkukerfinu, en hafa einnig reynst hentug lausn fyrir önnur verkefni þar sem þörf er á traustu, einangruðu og umhverfisþolnu húsnæði. Má þar meðal annars nefna þjónustuhús fyrir borholur, olíudreifingu og annan tækjabúnað.
Frá árinu 2021 hefur Rafal framleitt og sett saman yfir 100 hús, sem hvert um sig er sérsniðið að þörfum viðkomandi verkefnis. Þetta endurspeglar bæði fjölbreytni verkefna og sterka stöðu Rafal sem leiðandi framleiðanda á sviði dreifistöðvahúsa á Íslandi.
Stærðir og útfærslur
Rafal framleiðir hús í ýmsum stærðum og gerðum, eftir umfangi og notkun. Staðlað hús, grunnhúsið, miðast við 3440 mm lengd, 2240 mm breidd og 3150 mm hæð með sökkli. Hæð sökkuls er 600mm.
Útfærslur sem hafa verið gerðar eru eftirfarandi:
- Staðlað hús
- 1½ hús
- Tvöfalt hús
- Þrefalt hús
- Sérsniðnar stærðir
- Hurðar á langhlið eða skammhlið
Húsin eru smíðuð og prófuð á spennaverkstæði Rafal og eru afhent tilbúin til notkunar, með möguleika á uppsetningu á búnaði eftir óskum viðskiptavina.



Sökklar og undirbygging
Undirstöður er hægt að fá í mismunandi útfærslum:
- Sökklar með eða án olíugryfju
- Gegnheilir sökklar, án inntaks- og úttaksgata
- Sérsniðnir sökklar


Gólfgindur eru aðlagaðar að búnaði hússins.
Uppsetning búnaðar
Húsin er hægt að fá afhent með eða án búnaðar, eftir þörfum verkefnis. Hjá Rafal starfar sérhæft starfsfólk með háspennuréttindi sem sér um uppsetningu og tengingu búnaðar í húsunum, í samræmi við óskir og kröfur viðskiptavina.


Aukinn sveigjanleiki í uppsetningu og flutningi
Nýjasta þróunin í framleiðslunni býður upp á aukinn sveigjanleika í uppsetningu á búnaði og flutningi. Ef óskað er eftir afhendingu á húsi með búnaði er nú hægt að velja hvort húsið sé flutt í heilu lagi með sökkli eða hvort hús og búnaður sé flutt sér og sökkullinn sér. Þessi aðferð léttir flutninga til muna og auðveldar uppsetningu, sérstaklega þegar koma þarf húsunum fyrir á svæðum þar sem aðgengi er erfitt.


Rafal húsin eru hönnuð og framleidd á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður, hvort sem þau standa í þéttbýli, á fjallstoppum eða við sjávarsíðuna. Veggir eru pólíhúðaðir, sem veitir þeim auka vörn gegn salti, raka og veðrun.
Húsin eru endingargóð, fjölhæf og sérhönnuð fyrir verkefni framtíðarinnar.
Ef þú vilt vita meira, endilega hafðu samband!
Sigrún Hrafnsdóttir
Deildarstjóri – Framleiðsla
sigrun@rafal.is

Ingvi Þór Hjaltason
Framleiðslustjóri – Framleiðsla
ingvih@rafal.is


