← Öll verkefni
VERKEFNI

Sérsmíðuð dreifistöðvahús

Um verkefnið

Rafal hannar og framleiðir sérsmíðuð dreifistöðvahús fyrir áreiðanlega raforkudreifingu, sem standast strangar kröfur um umhverfi og rekstur.

Frá árinu 2021 hefur Rafal afhent yfir 100 dreifistöðvahús, hvert sniðið að þörfum viðkomandi verkefnis. Húsin eru hönnuð sem lykilþáttur í raforkuinnviðum, en þjóna jafnframt sem traust, einangruð hús fyrir fjölbreytta iðnaðarnotkun, þar á meðal borholur, olíudreifingu og tæknibúnað. Allar einingar eru framleiddar og prófaðar í aðstöðu Rafal og afhentar tilbúnar til uppsetningar, með möguleika á að rafbúnaður sé settur í þær.

Afhent frá 2021Yfir 100 hús

Í boði eru meðal annars

  • Staðlaðar stærðir og sérsmíði
  • Stök, tvöföld og fjölhólfa hús
  • Sveigjanleg staðsetning hurða (á langhlið eða skammhlið)
  • Sérhannaðar lausnir eftir kröfum verkefnis

Undirstöður

  • Með eða án olíuheldni
  • Heilar undirstöður án kapalopa
  • Sérsniðnar undirstöður