Á myndinni eru Valdimar Kristjónsson, forstjóri Rafal, og Guðmundur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Bergraf.
Rafal ehf. og eigendur Bergraf ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Rafal á öllu hlutafé Bergrafs, með fyrirvara um endanlegan frágang viðskiptanna. Markmið kaupanna er að styrkja enn frekar þjónustu og þekkingu á sviði gatnalýsingar, rafmagns og tengdra innviða.
Kaupin eru háð hefðbundnum fyrirvörum, þar á meðal samþykki Samkeppniseftirlitsins og fullnægjandi niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.
Bæði Rafal og Bergraf hafa byggt upp sterka stöðu og mikla reynslu á sviði gatnalýsingar. Með kaupunum sameinast þekking, mannauður og þjónusta félaganna undir merkjum Rafal. Starfsemi Bergraf mun renna inn í Rafal og þannig skapast öflugri heild með aukna getu til að þjónusta viðskiptavini og takast á við fjölbreytt og umfangsmikil verkefni.
Bergraf mun halda áfram rekstri sínum með óbreyttum hætti á meðan áreiðanleikakönnun stendur yfir. Gert er ráð fyrir að viðskiptin gangi formlega í gegn þegar öll skilyrði hafa verið uppfyllt.
“Við hjá Rafal erum gríðarlega spennt fyrir þessu tækifæri en með þessari sameiningu verðum við komin með landsliðið í gatnalýsingu. Við hlökkum mikið til að bjóða starfsfólk Bergraf hjartanlega velkomin í ört stækkandi hóp Rafal” segir Valdimar Kristjónsson forstjóri Rafal.


