Rafal hlýtur Jafnvægisvogina 2026

Við hjá Rafal erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir árangur í að jafna kynjahlutföll í stjórnunarstöðum. Viðurkenningin er okkur mikil hvatning til að halda áfram að byggja upp fjölbreyttan og öflugan vinnustað þar sem öll hafa jöfn tækifæri til að vaxa og ná árangri.

Á undanförnum árum hefur Rafal lagt ríka áherslu á að fjölga konum innan fyrirtækisins, bæði í stjórnunarstöðum og öðrum hlutverkum. Í karllægri atvinnugrein eins og rafiðnaði skiptir miklu máli að skapa fyrirmyndir, ryðja úr vegi hindrunum og byggja upp vinnustaðamenningu þar sem fjölbreytileiki fær að njóta sín.

Í viðtali við Viðskiptablaðið í dag, 14. október, fjallar Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafal um þá vegferð sem fyrirtækið hefur verið á og mikilvægi þess að skapa fleiri konum tækifæri í iðnaðinum.

„Ég trúi því statt og stöðugt að góður árangur Rafal sé að miklu leyti því að þakka hversu vel okkur hefur tekist að fá konur til starfa, bæði í stjórnunarstöðum og öðrum hlutverkum,“ segir Ingibjörg í viðtalinu.

Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar er mikilvæg staðfesting á þeirri vinnu sem hefur átt sér stað hjá Rafal á undanförnum árum en jafnframt áminning um að jafnréttisstarfinu lýkur aldrei.

Við hjá Rafal erum gríðarlega þakklát fyrir viðurkenninguna og ekki síður stolt af starfsfólkinu okkar sem á stóran þátt í að gera Rafal að þeim vinnustað sem hann er í dag. Við höldum ótrauð áfram að skapa tækifæri fyrir öll og stuðla að jákvæðum breytingum í rafiðnaði.

Hægt er að lesa greinina hér: Viðskiptablaðið – Jafnvægisvog FKA