Framtíð gagnaveraiðnaðarins, verðmætasköpun og uppbygging raforkuinnviða voru í brennidepli á haustráðstefnu Rafal, sem haldin var í Hafnarfirði 8. október. Þar komu saman fulltrúar gagnavera, orkufyrirtækja og tæknifyrirtækja til að ræða hvernig Ísland getur nýtt tækifærin sem felast í örri þróun greinarinnar.
Yfirskrift ráðstefnunnar var „Hvernig byggjum við upp gagnaveraiðnað Íslands?“ Í erindum og pallborðsumræðum kom fram að tækifærin ná langt út fyrir sölu á raforku. Uppbygging og rekstur gagnavera kalla á sérhæfða þjónustu, tæknikunnáttu og öflugt samstarf sem getur skapað verðmæti víða um land.
Jóhanna Klara Stefánsdóttir, forstjóri Rafal, opnaði ráðstefnuna og fór yfir þróun fyrirtækisins frá upphafi starfseminnar í Búðardal árið 1983. Hún þakkaði Valdimari Kristjónssyni fyrir framlag hans á síðustu 15 árum og lagði áherslu á mannauð, öryggismenningu og traustan grunn fyrirtækisins.


Í ávarpi hennar kom jafnframt fram að þjónusta við gagnaver hefur orðið sífellt stærri hluti af starfsemi Rafal. Stofnun nýs félags, Fuse, markar næsta skref í þeirri þróun. Félagið mun sérhæfa sig í þjónustu við gagnaver og byggja á þeirri þekkingu og reynslu sem hefur orðið til innan Rafal.
Ný tækni kallar á breytta nálgun
Thomas Wunger, CDO og aðstoðarforstjóri hjá Assemblin Caverion DC, fjallaði um miklar breytingar í gagnaveraiðnaðinum og hvernig aukin notkun gervigreindar hefur áhrif á hönnun og uppbyggingu. Meiri reiknigeta kallar á öflugri raforkukerfi, aukna kælingu og hraðari framkvæmdir. Hann lagði áherslu á að huga þurfi að öryggi, orkunýtni og framtíðarþörfum frá upphafi verkefna.


Favio De La Barra Cavieres, Principal Design Modularization Lead hjá Eaton, tók undir mikilvægi heildstæðrar hönnunar. Hann fjallaði meðal annars um samspil raforkudreifingar og kælingar, staðlaðar einingar og lausnir sem gera gagnaverum kleift að stækka í áföngum. Náið samstarf við viðskiptavini og þjónustuaðila strax á hönnunarstigi væri lykill að því að mæta hröðum tæknibreytingum.


Mikilvægi þess að þekking og störf verði eftir á Íslandi
Ljósbrá Logadóttir, framkvæmdastjóri Fuse, fjallaði um hvernig hámarka megi virði gagnaveraiðnaðarins fyrir íslenskt samfélag. Hún benti á að verkefnin haldi áfram eftir að fyrstu uppbyggingu lýkur. Viðhald, endurnýjun búnaðar og breytingar á innviðum skapa áframhaldandi tækifæri fyrir íslensk þjónustufyrirtæki og iðnaðarfólk.


Ljósbrá lagði áherslu á uppbyggingu lítilla og meðalstórra gagnavera sem falli að íslenska orkukerfinu og þörfum nærsamfélaga. Skýr framtíðarsýn og fyrirsjáanlegt starfsumhverfi séu forsenda þess að fyrirtæki geti fjárfest í búnaði, menntun og sérhæfingu.
Ljósbrá stýrði jafnframt sófaspjalli með fulltrúum frá gagnaverum á Íslandi. Þar tóku þátt Styrmir Hafliðason, Managing Director Iceland hjá Verne, Bergþóra Halldórsdóttir, General Counsel & Head of Policy hjá Borealis Data Center og Hallgrímur Örn Arngrímsson, Director of Delivery á Íslandi hjá atNorth.
Í umræðunum var fjallað um samstarf við sveitarfélög, verktaka og menntastofnanir og hvernig tryggja megi að verðmæti og þekking verði eftir í nærsamfélögum. Þátttakendur lýstu vaxandi þörf fyrir tæknimenntað starfsfólk og mikilvægi þess að tengja nám við verkefni greinarinnar. Þekking sem verður til við uppbyggingu gagnavera geti nýst áfram í rekstri, þjónustu og nýjum verkefnum.






Orka og innviðir þurfa að þróast saman
Lovísa Árnadóttir, samskiptastýra Orkuveitunnar, stýrði sófaspjalli með fulltrúum orkugeirans. Þar tóku þátt Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs HS Orku, Gnýr Guðmundsson, leiðtogi kerfisáætlunar hjá Landsneti, Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun og Hjálmar Helgi Rögnvaldsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og orkumiðlunar hjá Orku náttúrunnar.
Þar kom fram að eftirspurn eftir raforku er mikil og að frekari vöxtur gagnaveraiðnaðarins krefjist þess að orkuframleiðsla, flutningsgeta og staðsetning nýrrar starfsemi séu skoðaðar í samhengi.
Fyrirsjáanleiki, samráð og skilvirkari leyfisveitingar voru meðal þeirra áherslna sem komu fram. Einnig var rætt um breytt notkunarmynstur gagnavera og hvernig raforkukerfið og þjónusta þess geti þróast með nýjum þörfum.






Við hjá Rafal þökkum fyrirlesurum, þátttakendum, samstarfsaðilum og gestum fyrir fróðleg erindi og mikilvægt samtal. Ráðstefnan sýndi vel að samstarf er lykillinn að gagnaveraiðnaði sem skilur eftir sig þekkingu, verðmæt störf og tækifæri fyrir íslenskt samfélag.
Skoðaðu myndir frá ráðstefnunni:
Viltu fá boð á næsta viðburð? Skráðu þig á póstlista Rafal fyrir fræðslu og viðburði.






















































































