Ljósbrá Logadóttir leiðir Fuse

Ljósbrá Logadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Fuse, nýs félags sem mun styðja við uppbyggingu og rekstur gagnavera. Félagið verður í meirihlutaeigu sömu hluthafa og Rafal og mun starfa náið með félaginu.

Með stofnun Fuse fær þjónusta við gagnaversiðnaðinn skýrari áherslu. Félagið mun byggja á þekkingu og reynslu Rafal á sviði raforkuinnviða og þróa tæknilausnir, vörur og þjónustu í nánu samstarfi við gagnaver og birgja, bæði hér á landi og erlendis.

Meiri verðmæti úr þekkingu og þjónustu

Á haustráðstefnu Rafal lagði Ljósbrá áherslu á að verðmætasköpun gagnaversiðnaðarins næði langt út fyrir rafmagnssölu. Í kringum gagnaverin hefði byggst upp öflugt vistkerfi sérhæfðrar þjónustu, tækniþekkingar og búnaðarsölu. Þar væru tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að gera sig enn meira gildandi.

Byggt á traustum grunni Rafal

Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafal, segir þjónustu við gagnaver hafa orðið sífellt stærri hluta af starfsemi félagsins á undanförnum árum.

„Undanfarin ár hefur þjónusta við uppbyggingu gagnavera orðið stærri og stærri hluti af starfsemi Rafal og gagnaversiðnaðurinn er orðinn sterk stoð í íslensku atvinnulífi. Við viljum áfram vera traustur samstarfsaðili gagnavera, bæði hér heima og erlendis, og með nýju skipulagi fær þessi starfsemi þann fókus sem hún þarf.

Við erum afar ánægð með að fá Ljósbrá til að leiða þessa uppbyggingu og ég hlakka til samstarfsins. Á sama tíma teljum við mikilvægt að hlúa vel að og efla kjarnastarfsemi Rafal sem leiðandi þekkingar- og þjónustuaðila í orkugeiranum,“ segir Ingibjörg Lilja.

Víðtæk reynsla úr tækni og rekstri

Ljósbrá kemur frá Advania, þar sem hún leiddi meðal annars verkefni tengd gagnaverum. Hún hefur víðtæka reynslu af rekstri og upplýsingatækni og starfaði áður í átta ár hjá Íslandsbanka, þar sem hún leiddi innkaup og samningagerð við birgja.

„Það er spennandi að fá tækifæri til að byggja upp nýtt félag á sviði sem er í jafn örum vexti. Við byggjum á traustum grunni Rafal og ætlum okkur að vera gagnaverum öflugur bakhjarl, bæði hér á landi og utan landsteinanna. Gagnaver gera miklar kröfur um áreiðanleika, sérþekkingu og vönduð vinnubrögð. Fuse verður öflugur samstarfsaðili greinarinnar, allt frá hönnun og uppsetningu til viðhalds og áframhaldandi reksturs,“ segir Ljósbrá Logadóttir.