Jóhanna Klara Stefánsdóttir tekur við starfi forstjóra Rafal af Valdimar Kristjónssyni í október. Valdimar lætur þá af störfum sem forstjóri eftir fimmtán ár við stjórn félagsins en mun áfram koma að starfsemi Rafal sem stjórnarmaður.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá Rafal á undanförnum árum. Félagið var stofnað af Kristjóni Sigurðssyni í Búðardal árið 1983 og hóf starfsemi í 30 fermetra bílskúr. Í dag er Rafal eitt stærsta rafverktakafyrirtæki landsins, með um 170 starfsmenn og starfsemi um land allt.
Undir stjórn Valdimars hafa umsvif Rafal aukist verulega og félagið komið að fjölmörgum stórum og krefjandi verkefnum í íslenskri orku- og innviðauppbyggingu. Sá vöxtur hefur byggst á öflugu starfsfólki, sterkri fagþekkingu og vilja til að takast á við ný og krefjandi verkefni.
„Það sem stendur upp úr eftir þessi ár er fólkið. Rafal hefur alltaf snúist um það: metnaðarfullt starfsfólk sem gengur í verkin og leysir þau vel. Við höfum aldrei verið hrædd við að fara eigin leiðir. Félagið stendur á sterkum grunni og tækifærin framundan eru fleiri og fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr. Að mínu mati er þetta réttur tími fyrir nýjan forstjóra að taka við keflinu og leiða félagið inn í næsta vaxtarskeið,“ segir Valdimar Kristjónsson.

Jóhanna Klara tekur við keflinu
Jóhanna Klara kemur til Rafal frá Samtökum iðnaðarins þar sem hún hefur síðastliðinn áratug gegnt starfi sviðsstjóra mannvirkjasviðs.
„Framundan eru fjölmörg spennandi verkefni hjá Rafal sem við hlökkum til að takast á við. Við njótum þeirra forréttinda að starfa með kraftmiklum viðskiptavinum sem treysta okkur fyrir stórum og krefjandi verkefnum í orku- og innviðauppbyggingu um land allt og á þeim grunni byggjum við áframhaldandi vöxt félagsins. Ég hlakka til að taka við keflinu og leiða þessa vinnu áfram með okkar öfluga starfsfólki,“ segir Jóhanna Klara.
Við hjá Rafal hlökkum til að bjóða Jóhönnu Klöru velkomna til starfa og til samstarfsins fram undan. Um leið þökkum við Valda fyrir hans mikilvæga þátt í uppbyggingu Rafal undanfarin fimmtán ár og hlökkum til að njóta áfram krafta hans og reynslu í stjórn félagsins.


